Amma Don

Velkomin heim til Ömmu Don.

Um verkefnið

Amma Don er svokallaður speakeasy kokteilbar og hugarfóstur meistarakokksins Þráins Freys Vigfússonar, sem oft er kenndur við Michelinstaðinn Óx.

Amma Don var vel stæð sjómannsfrú utan af landi. Hún hjálpaði til við að byggja upp bæinn sem hún bjó í og var alltaf til staðar þegar fólk þurfti á henni að halda. Það var alltaf gott að leita til hennar með vandamál, setjast niður með drykk og finna lausnir á ráðgátum lífsins. Skál fyrir Ömmu Don!

Markmið

Ramma inn glæsileika og fágun íslensku sjómannsfrúarinnar sem á alltaf eitthvað gott til að setja í glasið þitt, hvort sem tilefnið er hlátur eða grátur.

Hönnun

Hin íslenska kjarnakona er ef til vill svolítið ógnvekjandi við fyrstu sýn en hlýleikinn sem stafar af henni þegar þú kemur nær er einstakur. Hönnunarelement mörkunarinnar gætu í fyrstu virðst óaðgengileg en þegar nánar er að gáð eru þau fyllt smáatriðum sem bjóða öll velkomin.

Niðurstaða

Heimilisleg, íslensk fágun eins og hún gerist bezt.

Rýmið sjálft

Heimilið gefur innsýn í líf íslenskrar hefðarfrúar sjöunda áratugarins.

Innanhús hönnun á Ömmu Don kokteilbarnum er einstaklega heillandi og fékk Hér&Nú það verkefni að skapa mörkun fyrir barinn
Innviði kokteilbarsins Ömmu Don er glæsilegt og Hér&Nú vann við mörkun fyrir vörumerki barsins
Glæsileg hönnun er hluti af sjarma Ömmu Don og hjálpaði Hér&Nú auglýsingastofa við það að skapa einkenni fyrirtækisins
Amma Don hefur innanhús hönnun sem færir mann aftur í tímann og var Hér&Nú hluti af sköpunarferlinu
Hér&Nú auglýsingastofa hannaði mörkunina fyrir Ömmu Don kokteilbars
Stofa Ömmu Don er heillandi rými og fékk Hér og Nú það verkefni að hanna merki og mörkun fyrir barinn

Velkomin heim til Ömmu Don

Drykkir á heimsmælikvarða

Amma spyr alltaf hvort fólk vilji eitthvað að drekka þegar það kemur inn á heimilið.

Yfirleitt er henni svarað játandi.

Bréfsefni fyrir Ömmu Don kokteilbar var hannað af Hér&Nú auglýsingastofu
Kokteilseðill Ömmu Don barsins var hannaður af grafískum hönnuðum Hér&Nú auglýsingastofu

Skoðaðu næsta verkefni